Tilvísun í mál: FRN19020118
Til félagsmálastjóra
b.t. Notendaráða fatlaðs fólks
Þann 14. febrúar 2019 barst Gæða- og eftirlitsstofnun
félagsþjónustu og barnaverndar umsókn frá NPA miðstöðinni um starfsleyfi
til að starfrækja umsýslu með notendastýrðri persónulegri aðstoð, en
umsóknin er lögð fram skv. 7. gr. laga
nr. 1038/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Í samræmi við 6. .gr. reglugerðar
nr. 1033/2018 um starfsleyfi til félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og
annarra þjónustu- og rekstraraðila sem veita þjónustu við fatlað fólk
er nú óskað eftir umsögn notendaráðs fatlaðs fólks í þínu umdæmi
um umsóknina. Þar sem NPA miðstöðin hyggst bjóða upp á þjónustu
á landinu öllu, er beiðni þessi send til allra félagsþjónustuumdæma.
Notendaráð skulu skv. 42. gr. laga um félagsþjónustu
starfrækt til að tryggja aðkomu hagsmunasamtaka notenda við stefnumörkun
og áætlanagerð sveitarfélags í málefnum er varða meðlimi þeirra. Leita
skal umsagnar notendaráða áður en starfsleyfi
Óskað er eftir að umsögn Notendaráðs berist
innan 4ja vikna frá móttöku þessa bréfs og að í umsögninni komi fram hvort
mælt er með veitingu starfsleyfis til NPA miðstöðvarinnar.
Umsókn NPA miðstöðvarinnar fylgir með í viðhengi.
Ef óskað er frekari upplýsinga um umsóknina
skal notendaráð afla upplýsinga hjá sveitarfélagi og/eða umsækjanda eftir
því sem við á.
Með góðri kveðju,
f.h. Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu
og barnaverndar
Gunnhildur Gunnarsdóttir
| Gunnhildur
Gunnarsdóttir, lögfræðingur / Senior Legal Advisor
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar / Care Quality
Inspectorate for social services and child protection
Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík, Iceland
Sími / Tel: (+354) 545 8100
www.stjornarradid.is
- Fyrirvari/Disclaimer
|
Vinsamlegast hugið að umhverfinu áður en tölvupósturinn er prentaður /
Please consider the environment before printing